Almennt um leit

Efst á leitarsíðu er hægt að velja um Einfalda leit og Ítarlega leit. Einnig er hægt að velja hversu margar færslur birtast í niðurstöðuglugga; sjálfgefið er að 10 færslur séu birtar.

Einföld leit

  1. Í leitarreitnum stendur „Nafn - bær/hús - staða - sókn - sýsla“ með daufu letri. Þegar slegið er inn leitarorð er leitað í öllum þessum svæðum í manntalsgrunninum. Hægt er að eyða innslegnum texta úr þessum reit með því að smella á hnappinn Hreinsa.
  2. Þegar leitarorð hefur verið slegið inn er næst valið manntal eða manntöl með því að merkja við í reitina fyrir framan manntölin. Hægt er að velja eitt eða fleiri manntöl eða öll manntölin.
  3. Hægt er að nota algildisstafi (wildcards) við leit, sjá hér að neðan.
  4. Síðan er smellt á hnappinn Leita og þá hefst leitin, sem getur tekið nokkrar sekúndur.

Ítarleg leit

  1. Ítarlega leitin er keimlík einföldu leitinni, en býður upp á mun fleiri möguleika til að þrengja leitarskilyrði. Þar er hægt að leita eftir nafni, bæ/húsi, stöðu, sýslu, sókn og aldri og blanda þessum leitarskilyrðum saman með ýmsum hætti.
  2. Þegar byrjað er að slá í leitarreiti (nema nafn) birtast sjálfkrafa tillögur sem hægt er að velja úr og spara sér þannig innslátt. Ef það er gert, er best að velja réttu tillöguna og ýta síðan á TAB hnappinn og skrá í fleiri reiti ef með þarf. Síðan er smellt á hnappinn Leita eða ýtt á ENTER. Hægt er að nota algildisstafi (wildcards) við leit, sjá hér að neðan.
  3. Hægt er að leita ítarlega í niðurstöðuglugga eins manntals og er þá smellt á bláa reitinn fyrir aftan orðin „Leita ítarlega í manntalinu XXXX“ efst í niðurstöðuglugganum. Þegar ný leitarskilyrði hafa verið slegin inn og smellt á Leita birtast nýjar niðurstöður í þessum eina niðurstöðuglugga, en aðrar leitarniðurstöður úr öðrum manntölum, sem upphaflega var leitað í, raskast ekki. Til að leita aftur í upphaflegum grunnum er hakið í bláa reitnum fjarlægt.

Niðurstöður

  1. Niðurstöður birtast í flipaglugga fyrir neðan leitarreitinn/leitarreitina. Hver flipi sýnir niðurstöður þess manntals sem tilgreint er í flipanum. Þar birtist einnig fjöldi þeirra færslna sem fundist hafa í því manntali.
  2. Efst í niðurstöðuglugga hvers flipa birtist athugasemd um manntalið, t.d. „Skráningu manntalsins 1901 er ekki lokið“.
  3. Neðst í hverjum niðurstöðuglugga birtast tenglar í fleiri niðurstöðusíður. Hægt er að smella á númer síðna til að kalla þær fram. Einnig má fletta síðum með því að smella á hnappana Fyrri síða og Næsta síða. Lengst til hægri í þessari línu er sýndur heildarfjöldi niðurstöðufærslna og niðurstöðusíðna.
  4. Ef smellt er á nafn, koma í ljós nánari upplýsingar um viðkomandi einstakling. Þessar upplýsingar má senda á Facebook, senda í tölvupósti eða prenta út. Vakin er athygli á útskýringum neðst í þessum upplýsingaglugga. Glugganum er lokað með því að smella aftur á nafnið.
  5. Ef smellt er á heiti bæjar/húss, opnast gluggi sem sýnir alla íbúa bæjarins/hússins. Á bæ, eða í húsi, geta verið fleiri en eitt heimili og eru þau auðkennd með tölustaf fyrir framan nafn fyrsta íbúans á heimilinu eða „x“ sem auðkennir húsfólk og aðra sem framfærðu sig sjálfir. Í manntölunum 1901 og 1910 má sjá „St“ á þessum stað og merkir það að viðkomandi sé staddur á þessu heimili, en eigi þar ekki heima. Í þessum glugga er einnig hægt að fá nánari upplýsingar um tiltekinn einstakling með því að smella á nafn hans eins og lýst er í lið 4. Upplýsingar í þessum glugga má senda í tölvupósti eða prenta út. Til að loka glugganum nægir að smella einhvers staðar utan hans, en einnig má smella á litla x-ið efst í horninu til hægri.

Notkun algildisstafa (wildcards) við leit

Þessir algildisstafir (wildcards) eru notaðir við leit í manntalinu:

  1. _ táknar hvaða staf (aðeins einn) sem er, t.d. „Vald_mar“ gefur niðurstöður eins og Valdimar og Valdemar ásamt föður/eftirnöfnum ef þeim er til að dreifa.
  2. * táknar hvaða stafi (einn eða fleiri) sem er, t.d. „Sveinbj*“ skilar niðurstöðum á borð við Sveinbjörn, Sveinbjörg, Sveinbjarni o.s.frv. ásamt föður/eftirnöfnum ef við á.
Bæði í einföldu og ítarlegu leitinni er sjálfkrafa sett * fyrir aftan leitarorð og því skilar leitarorðið „Jón“ öllum Jónum, með viðbótarnöfnum og án þeirra.

Til að leita að tilteknu orði er leitarorðið haft innan gæsalappa. Þannig myndi leitarorðið „Jón“ eingöngu skila þeim sem heita bara Jón og engu öðru nafni.